Um okkur
Saumahornið er lítil netverslun sem er stofnuð og rekin af tveimur klæðskerum. Okkur fannst vanta aðgengi að mismunandi tækjum og tólum fyrir klæðskera, hönnuði eða aðra sem elska að sauma.
Við erum Hafrún Harðardóttir og Telma Dögg Björnsdóttir. Báðar kláruðum við starfsnámið okkar í Skotlandi, Telma í Campbell's of Beauly og Hafrún í Blues & Browns í Perth. Við tókum sveinsprófið vorið 2021 og höfum fylgst að frá því að við byrjuðum í klæðskeranáminu í Tækniskólanum.
Saumahornið
Kt. 030993-2929
Hörgatún 7A, 210 Garðabær
S. 8480837
hallo@saumahornid.is